Illgirni og almenn mannvonska

fimmtudagur, apríl 08, 2004

Thad er enginn páskur til

Thegar sá dagur kemur ad ég lendi í helvíti og sit theim hyrnda sjálfum ad dexteram manis, mun ég bidja thann hinn sama ad gera mér greida. Hann tharf ad sjá til thess ad ákvedid fyrirtaeki fari á hausinn og forsvarsmenn thess lendi í kötlunum í nedra.

Ég tharf nefnilega ad koma fram hefnd á hollensku póstthjónustunni - sem heldur páskaegginu mínu í gíslingu.

Auk páskaeggsins sakna ég disks med Karlakórnum Thröstum, thurrkads steinbíts (sem er ábyggilega farinn ad thrána allverulega) og pils eins sem litla systir eyddi í mörgum vökustundum.

Thad er líka lakkrís í kassanum

Mikid vona ég ad thetta komi á morgun...


Víóluskrímslid
- gledilega páska

Engin ummæli: