Illgirni og almenn mannvonska

þriðjudagur, nóvember 11, 2008

Hjer er gert við prímusa

Hér með neita ég, Anna Hugadóttir víóluskrímsli og barnafræðari, því algerlega að ég beri nokkra ábyrgð á þeim efnahagslegu hörmungum sem nú dynja yfir íslensku þjóðina.

Þessu til sönnunar legg ég fram heimilisbókhaldið frá árunum 1999-2008 fyrir hvern sem lesa vill.

Auk þess hef ég aldrei skilið fólk sem telur sig þurfa að hafa margar milljónir á mánuði til þess að komast af. Það er nú bara aumingjaskapur.

Víóluskrímslið - ekki mitt klúður

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

...og ekki heldur mér að kenna - hef bara ekki verið á landinu nógu lengi undanfarin ár til að hafa getað gert skaða. Fann aldrei sumarvinnu sem bauð milljón eða meira - skrambans, getur verið að ég fór í vitlaust nám???

knús frá Gent!